 |
|
 |
Ferskt og gott hráefni
Allur fiskur sem verkaður er í Gullfiski er keyptur á
fiskmörkuðum. Lögð er höfuðáhersla
á að kaupa nýjan línufisk og þá
sérstaklega frá vestfjörðum og Snæfellsnesi.
Til að fá sem best hráefni er einungis keyptur
undirmálsfiskur, en stærð fisksins skiptir máli
við þurrkun og einnig bragðgæði. Fiskurinn
sem keyptur er kemur til vinnslu daginn eftir kaupin og er hann
þá strax fullunninn.
Fiskurinn er flakaður og síðan roðflettur, ef
þurrka á roðlausa ýsu og að síðustu
er honum raðað á sérstakar þurrkgrindur.
Grindunum er loks komið fyrir í frysti og þaðan
fara allar grindurnar í þurrkklefann. Meðalþurrktími
er í kringum 4-6 sólarhringar.
Eftir að fiskurinn er orðinn þurr er hann tekinn úr
klefanum og strax valsaður sem kallað er. Með völsuninni
verður fiskurinn mjúkur og laus í sér.
Þegar búið er að valsa fiskinn er honum pakkað
í söluumbúðir og settur í kæli.
Úr kælinum fer hann beint í verslanir og loks
á borð íslendinga.
Í Gullfiski er gæðastjórnunarkerfi sem tekur
mið af GÁMES / HACCAP aðferðafræðinni.
Starfsemin er undir eftirliti frá Heilbrigðiseftirliti
Hafnarfjarðar og Sýni Skoðunarstofu.
Hreinleiki lands og hafs
Það dylst engum að íslendingar
hafa yfir einum hreinustu fiskimiðum heims að ráða.
Margítrekaðar rannsóknir sýna að sjávarafurðir
veiddar í íslenskri lögsögu er með því
hreinasta sem til þekkist. Sökum þessa og hve íslensk
fyrirtæki standa framarlega í veiðum og vinnslu
á sjávarafurðum er eftirspurn eftir íslenskum
sjávarafurðum mikil á erlendum mörkuðum.
|
 |
|