:: Júlí
:: Júni


Júlí 2002
Ný vefsíða
Eins og sjá má er vefsíða Gullfisks nú komin í loftið. Á vefsíðunni má finna ýmsar upplýsingar um fyrirtækið, vörurnar og framleiðsluaðferðir. Nú á dögum er nauðsynlegt fyrir fyrirtæki að halda úti vefsíðu þar sem allar upplýsingar um fyrirtækið koma fram. Í raun má segja að vefsíðan sé andlit fyrirtækisins út á við. Vefsíðan er enn í vinnslu og verður það fram eftir haustinu.


Júlí 2002
Harðfiskurinn vinsæll hjá íslendingum búsettum erlendis
Það hefur færst í vöxt að íslendingar búsettir erlendis panti harðfisk hjá Gullfiski. Fyrirtækið hefur sent út til Japans, Kanada, Svíþjóðar, Danmerkur, Hollands, Bretlands, Bandaríkjanna og fleiri landa þar sem íslendingar eru búsettir. Það er ekki skrýtið að harðfiskurinn sé vinsæll hjá íslendingunum, því varla er hægt að fá þjóðlegri mat og því má segja að harðfiskurinn haldi tengslum landans við Ísland með góðum árangri. Þeir sem vilja panta harðfisk er bent á að senda tölvupóst á netfangið: gullfiskur@gullfiskur.is