:: Júlí
:: Júni


Júní 2002

Þekkt andlit í kynningar Gullfisks
Í vetur var ráðist í það verkefni að búa til kynningarefni fyrir fyrirtækið með það í huga að breyta ímynd harðfiskframleiðenda á Íslandi. Öll vinnsla Gullfisks er undir ströngu eftirliti og gæðaeftirlitskerfi og því var brugðið á það ráð að hanna kynningarefni af hæsta gæðaflokki. Meðal þeirra sem sátu fyrir á myndum sem notaðar eru sem kynningarefni eru Bryndís Schram, Björn Leifsson eigandi World Class og Lilja Íris Gunnarsdóttir íþróttafræðinemi.




Júní 2002
Ný afurð
Gullfiskur hefur boðið norðmönnum uppá roðlausan steinbít með góðum árangri. Því var brugðið á það ráð að bjóða íslendingum uppá roðlausan steinbít og hefur landinn tekið vel í vöruna, enda er um einstaklega góða afurð að ræða.





Júní 2002
Markaðssókn á Íslandi
Í kjölfar aukinnar markaðssóknar og vöruþróunar var ráðist í að hanna og lagfæra merki fyrir Gullfisk, auk þess sem hannaðar voru nýjar umbúðir fyrir afurðir fyrirtækisins. Samhliða þessu voru hannaðir sérstakir umbúðastandar undir vörur Gullfisks, en standarnir munu koma í verslanir í haust.



Júní 2002
Norðmenn ánægðir
Frá byrjun árs 2000 hefur Gullfiskur flutt út harðfisk til Noregs með góðum árangri. Sölustaðir í Noregi, þar sem boðið er uppá vörur Gullfisks eru orðnir rúmlega 200. Aðallega er flutt út ýsa, þorskur, steinbítur og Gullskífur. Allar vörur Gullfisks í Noregi eru pakkaðar í 30 gramma umbúðir. Það hefur komið forsvarsmönnum Gullfisks skemmtilega á óvart hvað norðmenn taka vel á móti afurðunum, enda eru frændur okkar norðmenn vel kunnugir þessari þjóðlegu afurð.