Fyrirtækið Gullfiskur var stofnað
í byrjun árs 1990 og fyrstu árin var fyrirtækið
staðsett í Breiðadal í Önundarfirði
á vestfjörðum. Til að byrja með voru allar
afurðir fyrirtækisins þurrkaðar í hjöllum
í Breiðadal og var uppistaða framleiðslunnar
Ýsa og Steinbítur. Árið 1999 flutti fyrirtækið
í glæsilegt húsnæði að Eyrartröð
11 í Hafnarfirði og hafist var handa við að þróa
og hanna sérstaka þurrkklefa sem þurrkað
gæti fiskafurðir sem stæðust ströngustu
gæðakröfur. Samhliða þróun klefanna
framleiddi Gullfiskur harðfisk fyrir innanlandsmarkað, bæði
ýsu og Steinbít. Árið 1999 voru klefarnir
gangsettir og jafnframt var hafist handa við að þróa
nýja vörulínu sem samanstóð af þurrkuðu
fisk snakki. Fyrstu pokarnir litu dagsins ljós síðla
árs 1999 og frá þeim tíma hafa Gullskífurnar
frá Gullfiski verið vinsælar.
Þurrkklefar fyrirtækisins eru einstakir í sinni
röð í heiminum og er ástæðan sú
að við þurrkun í klefunum er hægt að
líkja eftir öllum umhverfislegum aðstæðum,
auk þess sem þurrktími afurðanna er styttur
til muna. Einn stærsti kosturinn við klefana er að
með notkun þeirra eru gæði afurðanna mjög
jöfn, auk þess sem hreinlæti við þurrkun
er mjög mikið því klefarnir eru lokaðir
meðan á þurrkun stendur. Öll notkun klefanna
er tölvustýrð
Frá því að þurrkklefarnir voru gangsettir
hefur stöðug vöruþróun verið í
gangi í fyrirtækinu. Með tilkomu klefanna hefur
svigrúm fyrirtækisins aukist mikið hvað varðar
vöruþróun og nú þegar er verið
að leggja lokahönd á vöruþróun
þurrkaðra sjávarafurða sem bætast við
vörulínu fyrirtækisins.
Á fyrri hluta ársins 2000 hófst útflutningur
á þurrkuðum afurðum fyrirtækisins. Hefur
sókn á nýja markaði gengið samkvæmt
áætlun og í hverjum mánuði hefur
útflutningurinn aukist jafnt og þétt.
Gullfiskur er ungt og framsækið fyrirtæki sem hefur
á að skipa góðu starfsfólki, hátæknibúnaði
til nota við þurrkun matvæla og þjónustuhlutverki
sem miðar að því að sinna þörfum
viðskiptavina til fullnustu.