:: Gæði og heilsa
:: Vöruflokkar

Gæði & heilsa

Vörur Gullfisks eru gæðavörur sem framleiddar eru með hæstu gæðastaðla að leiðarljósi. Þurrkbúnaður fyrirtækisins sem er einstakur í sinni röð í heiminum tryggir jöfn gæði og yfirbragð. Til að þjóna viðskiptavinum sínum sem best fer fram stöðug vöruþróun hjá fyrirtækinu og er markmiðið með því að geta boðið upp á breiða línu þurrkaðra afurða.

Eins og áður segir var fiskur þurrkaður af nauðsyn hér á öldum áður. Í dag er harðfiskur og þurrkað sjávarfang viðurkennt sem heilsufæði. Gullskífur hafa til að mynda verið mjög vinsælar hjá fólki sem stundar heilsurækt af einhverju tagi, því einn poki af Gullskífum inniheldur mikið af næringarefnum. Í hverjum 100g af Gullskífum er næringargildið eftirfarandi:


Kcal:
Kj:

Prótein:
Fita (Omega 3):
Steinefni:
Vatn:
Salt:

319,7
1342,7

81,8g
0,7g
5,7g
10,5g
1,3g



Af þessari töflu sést að næringargildið í hverjum 40gramma poka er mikið og hafa næringarfræðingar gefið það út að einn poki af Gullskífum sé mjög góður og hollur millibiti.


>>sjá einnig umsögn frá Fríðu Rún Þórðardóttur, næringarfræðings og framkvæmdastjóra einkaþjálfunarsviðs líkamsræktarstöðvarinnar World Class