:: Gæði og heilsa
:: Vöruflokkar

Gullskífur

Umsögn frá Fríðu Rún Þórðardóttur, næringarfræðings og framkvæmdastjóra einkaþjálfunarsviðs líkamsræktarstöðvarinnar World Class:


Gullskífur eru hollur og magur millibiti, laus við öll auka efni og viðbætt salt.

Einn poki af Gullskífum inniheldur um 30g af próteinum sem er hæfilegur skammtur af próteinum í eina máltíð. Mikilvægt er að líkaminn á auðvelt með að nýta þessi prótein líkt og önnur prótein úr dýraríkinu.

Gullskífur innihald hvorki mettaða fitu né kólesteról og eru því tilvaldar fyrir þá sem þjást af hækkaðri blóðfitu og sykursýki.

Gullskífur - líkt og annar fiskur innihalda engan sykur og eru þar af leiðandi góðar fyrir tennurnar.

Gullskífur eru ekkert venjulegt snakk því í þeim leynist fjöldi næringarefna, aðallega prótein, hollar fjölómettaðar fitusýrur, kalk og kalíum. Prótein eru mikilvæg til vaxtar og viðhalds líkamans, ekki síst fyrir börn, unglinga og þá sem stunda íþróttir og heilsurækt að einhverju marki. Neysla á fjölómettuðum fitusýrum, á kostnað mettaðrar fitu, leggur grunn að heilbrigðu hjarta og æðakerfi og dregur þannig úr líkum á hjarta- og æðasjúkdómum. Kalk er eitt af uppistöðuefnum beina og tanna, auk þess að gegna lykilhlutverkií starfsemi tauga og vöðva, blóðstorknun og boðskiptum milli fruma og um frumuhimnur. Kalíum er nauðsynlegt fyrir eðlilega starfsemi tauga og vöðva og við stjórnun blóðþrýstings.