Vöruflokkar
Gullfiskur hefur frá árinu 1990
framleitt þurrkaðar fiskafurðir og hefur vörulína
fyrirtækisins á þessu sviði stækkað
verulega frá því sem hún var fyrst. Í
dag framleiðir fyrirtækið breiða línu þurrkaðra
afurða sem er í stöðugri þróun.
Ýsa
Ýsan er seld í neytendapakkningum
með roði, án roðs, barin og óbarin. Ýsan
er vinsælasti harðfiskurinn á Íslandi, enda
er mikil hefð fyrir neyslu fisksins.
Bitafiskur
Bitafiskurinn er unninn úr ýsu
og dregur hratt á hefðbundinn harðfisk í vinsældum.Bitastærðin gerir
hann sérlega heppilegan í bílinn þar sem ekki þarf að rífa hann í
bita
Steinbítur
Steinbítur er mjög vinsæll
á Íslandi og er hann aðallega seldur barinn með
roði. Mjög mismunandi er hvernig neytendur vilja fá
Steinbítinn, en margir vilja fá hann mjög feitann
þannig að fitan leki úr honum.
Ufsi
Það hefur færst í vöxt
að íslendingar vilji fá þurrkaðan Ufsa
og er hann þá aðallega seldur sem
bitafiskur í
neytendapakkningar. Gullfiskur hefur ekki hafið almenna sölu
á þurrkuðum Ufsa því einungis er tekið
við sérpöntunum.
>>sjá
Umsögn frá Fríðu Rún Þórðardóttur,
næringarfræðings og framkvæmdastjóra
einkaþjálfunarsviðs líkamsræktarstöðvarinnar
World Class:
|